Samhentir er leiðandi fyrirtæki í sölu og framleiðslu á umbúðum, rekstrarvörum og pökkunarvélum fyrir sjávarútveg, matvæla- og iðnaðarframleiðendur og endursöluaðila hverskonar. Fyrirtækið var stofnað árið 1995.
Hjá okkur færðu allskyns umbúðir s.s. kassa, öskjur, arkir, poka, pappa, plast, límbönd og hvaðeina svo vel fari um vöruna þína. Birgjar okkar eru fjölmargir, bæði innlendir og erlendir. Erum ráðgefandi um lausnir, efnisval, hönnun og tækjakost.
Til að spara þér sporin bjóðum við einnig: rekstrarvörur svo sem hreinlætisvörur og einnota vörur, vinnufatnað og skó, áhöld svo sem hnífa og matvinnsluáhöld, krydd, íblöndunarefni, matvinnslu- og pökkunarvélar. Samhentir leggja sig fram um að viðskiptavinurinn fái



