fimmtudagur 03.júní 2010
Undanfarið hefur verð á bæði pappír og plasti hækkað á hrávörumörkuðum og þar af leiðandi einnig á
fullunninn vöru.
Á síðustu 12 mánuðum hefur verð á hráefni til f
ramleiðslu á bylgjupappa hækkað um allt að 69%, sjá mynd hér til
hliðar. Erlendir birgjar okkar hafa eftir megni reynt að komast hjá verðhækkunum en tilkynntu þó nýverið hækkanir
á bilinu 5 til 11%. Frá því um áramót hefur íslenska krónan styrkst um 11% sem veldur því að enn sem
komið er komumst við hjá því að hækka verðin í íslenskum krónum. Hjá þeim sem versla í erlendri
mynt verður því miður ekki komist hjá álíka verðhækkunum á vörum frá erlendum birgjum.
Íslenskir birgjar hafa verið að hækka verð á nokkrum vörum. Verðin á þeim vörum munu hækka til samræmis.





