Á fordæmalausum tímum vara Samhentir Kassagerð við mögulegum vöruskorti

Á fordæmalausum tímum vara Samhentir Kassagerð við mögulegum vöruskorti

Í gegnum tíðina hefur starfið og árangurinn hjá okkur í Samhentum Kassagerð byggst upp á færu starfsfólki og gríðarlega sterkum birgjum ásamt mjög góðu samstarfi við okkar viðskiptavini. Í dag státum við okkur af því að vinna mjög víða með stærstu birgjum heims. Stærð þessara birgja hefur hjálpað okkur að tryggja afhendingaröryggi til okkar viðskiptavina í gegnum tíðinna.

Það ástand sem nú varir í heiminum í kjölfarið á heimsfaraldrinum, fordæmalausar aðstæður (force majeure), er ástand sem við höfum hvorki upplifað áður né séð fyrir. Eins og flestir hafa fundið fyrir þá hafa verð hækkað og vöruskortur að myndast víða. Við slíkar aðstæður verðum við oftar en ekki að leita til annarra af okkar birgjum við lausn vandamála og kemur þá inn styrkur Samhentra kassagerðar hvað flóru birgja varðar. Þetta kann samt að þýða lengri afhendingarfresti en áður og getur afhendingarfrestur í verstu tilfellum orðið allt að 12-20 vikur eins og staðan er í dag.

Okkar ráðgjöf til þín ágæti viðskiptavinur við þessar aðstæður er að bíða ekki boðanna heldur leggja á ráðin og áætla mun lengra fram í tímann en áður hefur þekkst. Enn fremur ef spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við þinn tengilið eða sölumenn í söludeild Samhentra kassagerðar og við munum aðstoða þig sem best að leysa úr þínum málum.

 

Samhentir Kassagerð ehf

Suðurhraun 4A, 210 Garðabær

575-8000 / sala@samhentir.is / www.samhentir.is


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00