Umbúðir eiga að tryggja að innihald skili sér frá vinnslu til markaðar. Matvælaumbúðir hafa það mikilvæga hlutverk að lengja geymsluþol matvæla sem dregur úr matarsóun. Umbúðir þurfa að tryggja örugga meðferð, geymslu og flutning ásamt því að veita neytendum mikilvægar upplýsingar um vöruna. Góðar umbúðir eru hannaðar á ábyrgan hátt og lágmarka bæði sóun og neikvæð áhrif vörunnar á umhverfið. Með réttri hönnun má minnka magn hráefnis í umbúðum, hanna stærð með tillit til stöflun á bretti svo flutningur sé hagstæðari. Einnig er gott að huga að því að hafa réttar merkingar svo umbúðum sé rétt fargað að notkun lokinni.
Hægt er að fá bylgjupappa og umbúðarkarton úr endurunnu hráefni. Því meira sem það er endurunnið, því brúngrárra verður hráefnið.
Plast er fjölhæft efni sem hefur auðveldað daglegt líf okkar með notkun á því í umbúðir, tæki og lækningavörur. Það er létt endingargott og hagkvæmt. Plast er eitt besta efnið til þess að lengja endingartíma matvæla, draga úr matarsóun og verndagæði vöru í flutningi. Endurvinnsla plasts er lykilatriði til að draga úrúrgangi og vernda náttúruna. Með því að safna saman og endurvinna plast er hægt að spara orku, draga úr mengun og styðja við hringrásarhagkerfið. Með sjálfbærum lausnum og aukinni vitund um plast getum við nýtt plast á ábyrgari hátt.
Fáðu ráðgjöf um hvað hentar þér best.
Plast getur verið mjög hagstæður kostur, en það hefur lágt kolefnisfótspor í framleiðslu, flutningi og er hægt að endurvinna að fullu.
FSC-vottun: Trygging fyrir ábyrgri skógarstjórnun
FSC-vottun (Forest Stewardship Council) er alþjóðlegt kerfisem staðfestir að viðar- og pappírsafurðir séu unnar úr endurunnu hráefni, eða komi úr sjálfbærum-, löglega nýttum og vel stýrðum skógum. Hún stuðlar að jafnvægi milli umhverfislegra-, félagslegra- og efnahagslegra þátta ásamt því að vernda líffræðilegan fjölbreytileika og samfélög sem byggja á skógum.
Markmið og flokkar vottunar
Helstu markmið FSC-vottunar eru að tryggja sjálfbæra nýtinguskóga, vernda vistkerfi og mannréttindi og koma í veg fyrir ólöglega skógarstarfsemi.
Vottunin skiptist í:
Skógarsvæðavottun: Staðfestir sjálfbæra stjórnun skóga.
Rekjanleikavottun: Tryggir rekjanleika afurða í gegnum alla framleiðslukeðjuna.
Staðfesting ábyrgðaraðildar: Tryggir að blöndun viðar sé gerð í samræmi við staðla.
Ávinningur FSC-vottunar
FSC-vottun stuðlar að varðveislu skóga og vistkerfa, bætir lífsgæði samfélaga sem byggja á skógarstarfsemi og eykur traust til fyrirtækjasem nýta FSC-merkt efni. Fyrirtæki með slíka vottun öðlast betri markaðsaðgengi og jákvæða ímynd.FSC-merkið birtist á fjölmörgum vörum, svo sem bókum, húsgögnum og byggingarefni. Með því að velja FSC-vottaðar vörur styðja neytendur við sjálfbærni og ábyrga nýtingu náttúruauðlinda. Vottunin er því mikilvægur stuðningur við sjálfbæra framtíð.
Samhentir og FSC-vottun
Samhentir er ekki meðrekjanleikavottun, en allir okkar helstu birgjar hafa FSC rekjanleikavottun.Við getum því sagt að við kaupum rekjanleikavottað hráefni og vörur, en aftur á móti ekki sagt að við seljum rekjanleikavottaðar vörur þar sem að við erum ekki með FSC rekjanleikavottun.
Hafðu samband við okkar ráðgjafa og saman gerum við þína hugmynd að veruleika.
Samband við ráðgjafa