Samhentir fagna 30 ára afmæli á þessu ári og hafa frá stofnun verið nátengdir íslenskum sjávarútvegi. Á þessum þremur áratugum hefur fyrirtækið þróast úr lítilli starfsemi sem sinnti einföldum umbúðalausnum fyrir fiskiðnaðinn í öfluga fyrirtækjasamstæðu sem býður í dag upp á heildarlausnir fyrir sjávarútveg sem og fjölmargar aðrar greinar atvinnulífsins.
Vöxturinn hefur bæði byggst á uppbyggingu innan fyrirtækisins og kaupum á öðrum félögum. Með því hefur Samhentum tekist að auka breidd sína, sérþekkingu og framleiðslugetu og skapa samstæðu þar sem ólík þekking og áratuga reynsla koma saman undir einum hatti.
Jóhann Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Samhentra, segir að þótt starfsemin hafi breikkað sé sjávarútvegurinn áfram kjarninn og stærsta einstaka atvinnugreinin innan samstæðunnar, enda standi hann undir tæplega helmingi af tekjum fyrirtækisins.
Starfsemin hefur tekið miklum breytingum frá stofnun fyrirtækisins og í dag snýst hlutverk Samhentra ekki aðeins um að selja umbúðir heldur í auknum mæli um að finna heildarlausnir sem hjálpa viðskiptavinum að reka starfsemi sína á skilvirkari hátt. Þar skiptir einnig miklu máli að geta tryggt afhendingaröryggi með öflugu lagerhaldi og breiðu vöruúrvali.
Löng og mikil vegferð
Jóhann hefur fylgst náið með þessari þróun frá því hann kom inn í fyrirtækið árið 2002.
„Við byrjuðum á því að handlíma tröllakassa, en þeir voru mikið notaðir í rækjuvinnslu og fiskiðnaði á þessum tíma. Síðan bættust smám saman við fleiri vörur, pappakassar og öskjur, og síðan komu plastvörurnar til sögunnar um aldamótin. Vélar fylgdu svo í kjölfarið.“
Þannig hefur vegferðin fyrst og fremst einkennst af stigvaxandi þróun. Vöruúrvalið hefur breikkað, þjónustan orðið umfangsmeiri og fyrirtækið færst nær því að geta leyst fleiri þarfir viðskiptavina undir einum hatti.
Mikil þróun hefur orðið í tæknilegri þekkingu. Umbúðir eru áfram stór hluti starfseminnar en samhliða þeim hafa bæst við pökkunarvélar, vélbúnaður, sjálfvirkni og róbótalausnir.
„Við getum í raun boðið heildarlausnir fyrir sjávarútveginn. Það eru umbúðir, pappakassar, plastvörur og öskjur og síðan ýmsar pökkunarlausnir í vélbúnaði.“
Þessi þáttur hefur vaxið jafnt og þétt og styrktist enn frekar með kaupum á Plastco. Með þeim kaupum bættist verulega við tæknilega þekkingu samstæðunnar, meðal annars á sviði vélbúnaðar og róbótalausna.
Þróunin hefur jafnframt verið leið til að bregðast við breytingum hjá viðskiptavinum. Samhentir hafa fylgt þeim eftir þegar þarfir þeirra hafa breyst og leitast við að þróa starfsemina í takt við þær.
Íslensk framleiðsla í breyttu umhverfi
Þótt Samhentir séu íslenskt fyrirtæki er stór hluti þeirra umbúða sem seldar eru framleiddur erlendis. Alþjóðleg samkeppni hefur gert innlendri framleiðslu erfitt fyrir á ákveðnum sviðum.
„Hér áður fyrr voru stór iðnfyrirtæki á Íslandi sem voru með þessa starfsemi, en það var ekki grundvöllur til að framleiða hér heima í samkeppni við stór og öflug fyrirtæki erlendis. Þannig að sú starfsemi lagðist að mestu af.“
Ákveðin framleiðsla er þó áfram hér á landi. Vörumerking framleiðir límmiða og merkingarlausnir og Formar framleiðir frauðplastkassa í Reykjanesbæ.
Að vörurnar séu til þegar á þarf að halda
Jóhann segir að eitt af því sem skipti hvað mestu máli í þjónustu Samhentra við sjávarútveginn sé afhendingaröryggi. Fyrirtæki í greininni geta ekki alltaf beðið eftir því að vara komi frá erlendum birgja þegar skip er að fara á sjó eða framleiðsla stendur yfir.
„Við erum með ríflega 15 þúsund fermetra húsnæði undir lager. Þannig getum við ávallt tryggt að við eigum til birgðir fyrir t.a.m. frystitogarana þegar þeir fara á sjó, þeir þurfa að taka mikið af umbúðum um borð og við tryggjum að alltaf séu til vörur þegar á þarf að halda.”
Þetta er mikilvægur hluti af þjónustunni og ein af ástæðunum fyrir því að fyrirtækið hefur lagt áherslu á að hafa bæði breitt vöruúrval og öflugar birgðir.
Samhentir hafa einnig fylgt íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum út fyrir landsteinana. Sala erlendis hefur verið á bilinu 7–10 prósent af veltunni og tengist einkum íslenskum frystitogurum og vinnslum sem starfa erlendis.
Áherslan hefur meðal annars verið á að selja sérhæfðar umbúðir fyrir fiskiðnaðinn sem fyrirtækin nota hér heima og áfram í erlendum rekstri sínum.
Þannig hafa Samhentir fylgt viðskiptavinum sínum eftir þótt starfsemi þeirra hafi færst út fyrir Ísland.
Þekkingin verður að fylgja með
Uppbygging Samhentra hefur að miklu leyti gerst með kaupum á fyrirtækjum sem búa yfir langri sögu og sérþekkingu. Jóhann bendir á að innan samstæðunnar séu félög sem eiga sér mun lengri sögu en Samhentir sjálfir, meðal annars Vörumerking og Kassagerð Reykjavíkur.
Vörumerking var stofnuð árið 1962 og Kassagerð Reykjavíkur árið 1937. Með fyrirtækjunum hefur því fylgt starfsfólk með mikla reynslu og þekkingu á sínum sviðum.
„Þótt Samhentir séu með 30 ára sögu er mjög mikil saga þarna innandyra. Reynslan hjá starfsfólkinu er gríðarleg. Ég held að meðalstarfsaldurinn sé einhvers staðar á bilinu 16–17 ár.“
Jóhann segir að þessi reynsla sé mikilvæg eign en á sama tíma standi fyrirtækið frammi fyrir þeirri áskorun að tryggja að þekkingin flytjist á milli kynslóða.
Vöxtur með kaupum og uppbyggingu
Fyrstu tíu árin óx fyrirtækið fyrst og fremst smám saman með viðskiptavinum sínum. Frá árinu 2007 fór ytri vöxtur hins vegar að verða stærri hluti af vegferðinni og síðan hafa nokkur fyrirtæki bæst við samstæðuna.
Þessi þróun hefur breytt Samhentum úr litlu fyrirtæki sem stofnað var af þremur einstaklingum í umfangsmikla fyrirtækjasamstæðu. Í dag starfa um 100 manns innan hópsins og veltan nálgast 10 milljarða króna.
Eignarhaldið hefur einnig tekið breytingum á síðustu árum. Jóhann segir að lengst af hafi sami hluthafahópur staðið að fyrirtækinu en fyrir um tveimur árum hafi þrír hluthafar farið út og aðrir hluthafar keypt þá út. Við kaup á Plastco bættust síðan lykilstarfsmenn þess fyrirtækis inn í hluthafahópinn.
Kaupin hafa því ekki aðeins snúist um að bæta við vörum og þjónustu heldur einnig um að koma inn með nýja þekkingu og reynslu.
Hærri kröfur kalla á sterkari innviði
Með vaxandi starfsemi hafa kröfur viðskiptavina einnig aukist. Þar sem stór hluti starfseminnar tengist matvælaframleiðslu eru gæði, rekjanleiki og öryggi orðin sífellt mikilvægari atriði.
„Við höfum verið að mæta auknum kröfum og gæðakröfum markaðarins. Þetta er náttúrulega matvælaframleiðsla að stórum hluta og þar eru miklar kröfur.“
Samhentir hafa því styrkt gæðakerfi sín og vottanir. Vörumerking fékk BRC-vottun fyrir framleiðslu sína og síðar fengu Samhentir sömu vottun fyrir vöruhús sín. BRC er alþjóðlegur gæðastaðall sem er mikið notaður í matvælaiðnaði. Jóhann segir að allt sé þetta hluti af þeirri þróun sem hefur einkennt fyrirtækið frá upphafi, að laga sig að breyttum kröfum og fjárfesta í þeirri þekkingu, tækni og innviðum sem þarf til að mæta þeim.
Sjálfvirknivæðing eykur hagræðingu og samkeppnishæfni
Sameining Plastco og Samhentra á síðasta ári hefur styrkt vélasöludeild Samhentra. Með sameiningunni sameinast reynsla Plastco af heildarlausnum, framleiðslulínum og pökkunarlínum þeirri vélasölu sem Samhentir sinntu fyrir.
Á sýningunni IceFish 26 verður meðal annars lögð áhersla á sjálfvirknilausnir fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki, þar á meðal róbóta og sjálfkeyrandi lyftara.
„Samhentir voru að selja vélar áður, meira svona stakar vélar, í alls konar verkefni. Plastco var hins vegar með heildarlausnir og framleiðslulínur og pökkunarlínur sem samanstanda af mörgum vélum. Með sameiningunni höfum við því fengið mjög öfluga véladeild,“ segir Stefán Benediktsson, sölustjóri véladeildar Samhentra.
Róbótar færa sjálfvirknina nær starfsfólkinu
Á sýningunni verður sýndur róbót af gerðinni UR20 frá danska fyrirtækinu Universal Robots. Um er að ræða svokallaðan kóbót, eða samvinnuvélmenni, sem er hannaður til að geta unnið við hlið fólks án þess að þurfa að vera lokaður inni í sérstakri öryggisgirðingu.
„Universal Robots er algjör frumkvöðull í þessum svokölluðu kóbótum og einn stærsti framleiðandi í heiminum á slíkum róbótum. Þeir eru einfaldari í forritun og allri notkun og það þarf ekki sérstaka forritunarkunnáttu til að vinna með þá.“
Róbótarnir eru nú þegar notaðir víða í íslenskum iðnaði, meðal annars hjá Brim og Samherja. Um 150 róbótar eru í notkun í íslenskum iðnaði og þeim fer fjölgandi.
„Þessi þróun er gríðarlega hröð og það er mikil eftirspurn eftir þessum lausnum frá okkur, sérstaklega svona einfaldri sjálfvirkni sem er fljót að borga sig upp og skila hagræðingu.“
Universal Robots-róbótarnir hafa verið hér á landi í um tólf ár og fyrirtæki sem hafa góða reynslu af þeim hafa í auknum mæli verið að bæta við og fjölga róbótum hjá sér.
Sjálfkeyrandi lyftarar einfalda flutninga
Önnur sjálfvirknilausn sem verður kynnt er sjálfkeyrandi lyftari. Slíkir lyftarar geta flutt bretti sjálfvirkt og eru þegar komnir í notkun hér á landi, meðal annars hjá Skinney-Þinganesi.
„Þar kemur lyftarinn með tóm bretti og tekur full bretti frá róbótum. Þeir hafa verið að skila mikilli hagræðingu.“
Kosturinn við lyftarana er meðal annars sá að ekki þarf að ráðast í umfangsmiklar breytingar á húsnæði eða innviðum fyrirtækjanna.
„Það þarf ekki að setja upp speglakerfi eða einhvers konar brautarkerfi í gólf eða neitt svoleiðis, heldur keyra þeir eingöngu á staðsetningarpunktum sem þeir reikna út sjálfir.“
Prentun beint á umbúðir
Á sýningunni verður einnig kynntur prentbúnaður sem getur prentað beint á frauðkassa og pappakassa meðan á framleiðslu stendur. Með búnaðinum má meðal annars draga úr notkun límmiða og prenta lógó, dagsetningar og aðrar upplýsingar beint á umbúðirnar.
„Þetta eru prentarar sem geta prentað í fullum lit. Við erum með þessa prentara hér á landi til að prenta á frauðkassana í framleiðslu. Eftir því sem laxeldi fer að stækka gætu menn viljað prenta á þetta beint í framleiðslunni, eins og gert er í Noregi.“
Þá verður einnig búnaður frá hollenska fyrirtækinu Afak kynntur á sýningunni. Fyrirtækið framleiðir meðal annars kassapökkunarvélar sem eru mikið notaðar í íslenskum sjávarútvegi.
Þjónustan fylgir tækninni
Samhentir leggja jafnframt áherslu á þjónustu við þann búnað sem þeir selja. Fyrirtækið er með sex tæknimenn sem sinna meðal annars uppsetningu og viðhaldi vélanna.
„Það skiptir gríðarlega miklu máli, því þessi tæki mega ekkert stoppa,“ segir Stefán og bendir á að sjálfvirknivæðing verði sífellt mikilvægari fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki.
„Hún er bara lykillinn að því að ná að lækka kostnað og auka samkeppnishæfni.“
The rich text element allows you to create and format headings, paragraphs, blockquotes, images, and video all in one place instead of having to add and format them individually. Just double-click and easily create content.
A rich text element can be used with static or dynamic content. For static content, just drop it into any page and begin editing. For dynamic content, add a rich text field to any collection and then connect a rich text element to that field in the settings panel. Voila!
Headings, paragraphs, blockquotes, figures, images, and figure captions can all be styled after a class is added to the rich text element using the "When inside of" nested selector system.
The rich text element allows you to create and format headings, paragraphs, blockquotes, images, and video all in one place instead of having to add and format them individually. Just double-click and easily create content.
A rich text element can be used with static or dynamic content. For static content, just drop it into any page and begin editing. For dynamic content, add a rich text field to any collection and then connect a rich text element to that field in the settings panel. Voila!
Headings, paragraphs, blockquotes, figures, images, and figure captions can all be styled after a class is added to the rich text element using the "When inside of" nested selector system.