Hverjir eru svona Samhentir?

Samhentir – Kassagerð er þjónustufyrirtæki um heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum.

Fyrirtækið er leiðandi þegar kemur að umbúðum. Kassar, öskjur, arkir, pokar, pappi, plast, límbönd og allt sem þarf svo vel fari um vöruna þína er til á lagernum okkar. Birgjar okkar eru fjölmargir, bæði innlendir og erlendir. Erum ráðgefandi um lausnir, efnisval, hönnun og tækjakost.

Til að spara þér sporin bjóðum við einnig upp á hvers kyns rekstrarvörur s.s. hreinlætisvörur og einnota vörur, vinnufatnað og skó, áhöld s.s. hnífa og matvinnsluáhöld, krydd og íblöndunarefni og pökkunarvélar. Samhentir leggja sig fram um að viðskiptavinurinn fái allt á einum stað. Hið mikla vöruúrval auk umbúðanna léttir verulega undir hjá framleiðslufyrirtækum þar sem hlutirnir þurfa að ganga hratt fyrir sig og hjá fiskiskipum sem stoppa stutt í landi.

Umbúðir selja er staðreynd sem flestir okkar viðskiptavinir hafa fengið að reyna. Því reynir oft á umbúðahönnuðinn að finna rétta utanumhaldið um vöruna. Samhentir er bandamaður þegar þú leitar umbúða á sanngjörnu verði, sem fara vel með vöruna þína og freista neytandanns.

Viðskiptavinir okkar starfa í hvers kyns matvælaframleiðslu. Stórútgerðafyrirtæki, einyrkjar og allt þar á milli. Iðnfyrirtæki í margs konar framleiðslu og endursöluaðilar leita einnig  til okkar þegar hanna þarf umbúðir fyrir stóra sem smáa vöru.

 

 

Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00