Golfmót starfsmanna Samhentra

Golfmót starfsmanna Samhentra fór fram þann 25 ágúst síðastliðinn. Spilað var á golfvellinum í Grindavík við frábærar aðstæður flottur völlur og yndislegt veður. Ellefu keppendur tóku þátt.

Golfmót starfsmanna Samhentra fór fram þann 25 ágúst síðastliðinn. Spilað var á golfvellinum í Grindavík við frábærar aðstæður flottur völlur og yndislegt veður. Ellefu keppendur tóku þátt.

Óhætt er að segja að fólk hafi spilað misvel og margir með tilþrifum sem verða aldrei endurtekin á golfvelli. Allir spilarar voru skráðir með rétta forgjöf svo óhætt er að segja að úrslitin hafi verið sanngjörn. Sigurvegari mótsins var Jóhann Ingi. Strákurinn stælti er vel að sigrinum kominn enda æft stíft í allan vetur og allt sumar fyrir þetta mót. Í öðru sæti var Brói og Palli bróðir í því þriðja. Bræðurnir eiga nú harma að hefna og komar þríefldir til leiks að ári. Pétur sigraði í flokki nýliða og Piotr var í öðru sæti; frábær tilþrif en það var mjög gaman að fá þá með í mótið og vonandi verða fleiri nýliðar á næsta ári. Að móti loknu var farið heim í höfuðstöðvarnar í Suðurhrauninu. Þar grillaði meistari Gurri fyrir mannskapinn sem drakk með marineringnum margskonar misgörótta drykki. Þáttakendur vour leystir út með veglegum verðlaunum.


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00