Keilumót starfsmanna

Keilumót starfsmanna
Loðfílarnir sigursælu
Keilumót starfsmanna var haldið miðvikudaginn 7 mars. Fjögur lið voru skráð til leiks, Drekarnir, Strápilsin, Demantarnir og Loðfílarnir. Góð stemning, mikil barátta og frábær tilþrif einkenndu mótið. Keppt var bæði í einstaklings og liðakeppni.

Loðfílarnir unnu í liðakeppninni, Demantarnir voru valin fallegasta liðið, Strápilsin voru valin vinsælasta liðið og Drekarnir valið Oroblu lið keppninnar. Í einstaklingskeppninni urðu mjög óvænt úrslit. Í fyrsta sæti var hinn massaði Palli El. Í öðru sæti var Pétur en hann var talinn sigurstranglegastur fyrir mótið og í þriðja sæti varð Alvin sem var nýkominn úr æfingabúðum. Að sjálfsögðu óskum við sigurvegurunum til hamingju og látum okkur hlakka til næstu keppni.

Fleiri myndir frá mótinu má nálgast hér


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00