SamVör í WOW

Þeir voru pínu stífir í göngulagi snillingarnir okkar sem tóku þátt í WOW cyklothon þetta árið enda búnir að hjóla 1.358 km umhverfis Ísland. Frábær árangur enda valinkunnur maður í hverju rúmi.

Liðið endaði í 11 sæti og safnaði áheitum fyrir gott málefni eða börnin í Reykjadal. Hér má sjá mynd af þessum köppum og að sjálfsögðu voru grillaðir hamborgarar og terta í eftirmat þegar þeir komu heim í Samhenta/Vörumerkingu. Áfram SamVör😊


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00