Starfið eftir að samhentir keyptu hlut af Kassagerð Reykjavíkur


Allt starfsfólk er komið saman en þó í þeirri mynd að unnið er mest heiman frá og starfsfólks söludeildar skiptir með sér vöktum í
verslun Samhentra á Suðurhrauni.

Verslunin opnaði aftur um miðjan desember og bjóðum við viðskiptavini velkomna til okkar með einföldum sóttvarnartakmörkunum eins og grímuskyldu og 2 metra fjarlægð.

Við nýjustu breytingarnar eru lagerar Samhentra á tveimur stöðum, annars vegar í Suðurhrauni 4 í Garðabæ og hins vegar á Korputorgi. Við viljum því beina því til okkar viðskiptavina að þegar kemur að því að sækja vörur þá er um að gera að kynna sér áður en haldið er af stað, á hvorum lagernum varan liggur.
Hafið samband við söludeild ef þörf er á, sala@samhentir.is

Önnur mál tengd innra starfi eru þau að innkaupadeild er nú sameinuð og komin undir eitt þak.
Þá verða breytingar til hins betra gagnvart fundaraðstöðu og í mötuneyti starfsmanna vegna þessara tilfærslu. Starfsmenn munu fá að njóta þess þegar hægt verður að starfa saman á nýjan leik í Suðurhrauni.


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00