Steinar Örn Sigurðsson er nýr starfsmaður í söludeild Samhentra

Steinar Örn Sigurðsson er nýr starfsmaður í söludeild Samhentra
Steinar Örn Sigurðsson

Steinar Örn Sigurðsson er nýr starfsmaður í söludeild Samhentra og ráðinn sem sölustjóri fyrir kjötiðnaðinn. Steinar Örn sem er menntaður kjötiðnaðarmaður hefur starfað í faginu síðustu áratugi en hefur síðustu ár færst meira í sölumál hjá ýmsum matvælafyrirtækjum. Steinar Örn hefur því víðtæka reynslu bæði úr kjötiðnaðinum og almennri sölu og þjónustu, sem mun nýtast honum vel í sínu nýja starfi og áframhaldandi góðu samstarfi Samhentra við viðskiptavini félagsins.

Við hjá Samhentum bjóðum Steinar Örn velkominn í samhentan hóp góðra starfsmanna Samhentra!


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00