Vestfjarða Örninn 2010

Hið árlega golfmót fyrir viðskiptavini Samhentra á Vestfjörðum, Vestfjarða Örninn 2010, var haldið föstudaginn 18 júní á Vesturbotnsvelli við Patreksfjörð. Hið árlega golfmót fyrir viðskiptavini Samhentra á Vestfjörðum, Vestfjarða Örninn 2010, var haldið föstudaginn 18 júní á Vesturbotnsvelli við Patreksfjörð.
Alls tóku 26 spilarar þátt. Leikið var eftir Texas scramble kerfi þar sem spila saman tveir einstaklingar og er annar með háa forgjöf en hinn lægri.

Mótið hófst um hádegi með sjávarréttasúpu og brauði og um kl.13:00 voru keppendur ræstir út, allir á sama tíma. Að loknu vel heppnuðu móti var slegið upp grillveislu fyrir keppendur og gesti.

Sigurvegarar voru Skjöldur Pálmason frá Odda á Patreksfirði og Helgi Gíslason frá Þórsbergi á Tálknafirði og fóru þeir 18 holurnar á 62 höggum sem er 10 höggum undir pari vallarins.

Veður var mjög gott meðan á mótinu stóð, hægur andvari, léttskýjað og 14°C hiti.

Golfklúbbur Patreksfjarðar sá um veitingar fyrir mót og grillveisluna að móti loknu og þökkum við hjá Samhentum þeim kærlega fyrir góðan mat og þjónustu.


Myndir frá mótinu

 Fleiri myndir í myndaalbúminu Vestfjarða Örninn 2010




Sigurvegarar mótsins, þeir Skjöldur Pálmason frá Odda á Patreksfirði og Helgi Gíslason frá Þórsbergi á Tálknafirði



Þáttakendur



Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00