Vestfjarða Örninn 2011

Hið árlega golfmót fyrir viðskiptavini Samhentra á Vestfjörðum, Vestfjarða Örninn 2011, var haldið föstudaginn 22. júlí á Syðridalsvelli í Bolungarvík.

Hið árlega golfmót fyrir viðskiptavini Samhentra á Vestfjörðum, Vestfjarða Örninn 2011, var haldið föstudaginn 22. júlí á Syðridalsvelli í Bolungarvík.

Alls tóku 24 spilarar þátt. Leikið var eftir Texas scramble kerfi þar sem spila saman tveir einstaklingar og er annar með háa forgjöf en hinn lægri.

Mótið hófst um hádegi með sjávarréttasúpu og brauði og um kl.13:00 voru keppendur ræstir út, allir á sama tíma. Að loknu vel heppnuðu móti var slegið upp grillveislu fyrir keppendur og gesti.

Sigurvegarar voru Óli Rafn Kristinsson frá HG í Hnífsdal og Björghildur Daðadóttir frá Jakobi Valgeir í Bolungarvík og fóru þau 18 holurnar á 61 höggi sem er 10 höggum undir pari vallarins.

 



Sigurvegararnir, Óli Rafn og Björghildur

 

Þess má einnig geta að einn spilari fór holu í höggi en það hefur ekki gerst áður í sögu Vestfjarða Arnarins. Gunnar Halldórsson (keppti sem gestur) fór holu í höggi á 3 braut sem er par 3 hola og 148 m löng.



Gunnar Halldórsson fór holu í höggi

Veður var mjög gott meðan á mótinu stóð, hægur andvari, léttskýjað og 14°C hiti.

Golfklúbbur Bolungarvíkur sá um veitingar fyrir mót og grillveisluna að móti loknu og þökkum við hjá Samhentum þeim kærlega fyrir góðan mat og þjónustu.

Fleiri myndir er að finna í myndasafni, smellið hér

Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00