Vestfjarðaörninn 2012

Vestfjarðaörninn 2012
Vestfjarðaörninn 2012
Hið árlega golfmót fyrir viðskiptavini Samhentra á Vestfjörðum, Vestfjarða Örninn 2012, var haldið föstudaginn 22. júlí á Syðridalsvelli í Bolungarvík. Alls tóku 26 spilarar þátt. Leikið var eftir Texas scramble kerfi þar sem spila saman tveir einstaklingar og er annar með háa forgjöf en hinn lægri. Mótið hófst um hádegi með sjávarréttasúpu og brauði og um kl.13:00 voru keppendur ræstir út, allir á sama tíma. Að loknu vel heppnuðu móti var slegið upp grillveislu fyrir keppendur og gesti. Sigurvegarar voru Jóhann Birkir og Einar Kristjóns en þeir fóru þau 18 holurnar á 63 höggum sem er 8 höggum undir pari vallarins.

Í öðru sæti voru Salmar J og Gunnar Halldórsson  á 65 höggum og í þriðja sæti voru Sólveig Hrafnsdóttir og Hjörtur Ragnarsson á 66 höggum.

 

 

Sigurvegarar

Sigurvegararnir, Jóhann og Einar

 

Annað sæti

 

Í öðru sæti Salmar og Gunnar

 

Í þriðja sæti Sólveig og Hjörtur


Samhentir - kassagerð hf | Suðurhrauni 4a | 210 Garðabæ | Sími +354 575 8000 | Fax +354 575 8001 | sala@samhentir.is

Opnunartími:  Mánudaga til föstudaga 8:00 - 16:00