Flýtilyklar
Leit
Fréttir
Samhentir loka afgreiðslu úr versluninni tímabundið af öryggisástæðum. Hafið samband beint við sölufulltrúa.
Samhentir hafa ákveðið að laga verslun sinni að breyttum aðstæðum sem nú eru og sinna henni alfarið í gegnum netþjónustu. Við munum áfram geta afgreitt vörur að undangengnum samskiptum á netinu. Vonum að við mætum skilningi á þessari aðlögun okkar og leggjum okkur fram við að láta hlutina ganga upp. Öll afgreiðsla verður óbreytt.
Ýttu á hlekkinn að ofan til að sjá helstu leiðirnar að okkur:
Verðhækkun vegna gengisbreytinga
Vegna veikingar íslensku krónunnar og hækkana á öðrum aðföngum verða hækkanir á verðum hjá Samhentum frá og með 19 mars. Verðhækkanir eru í takt við breytingu á gengi íslensku krónunnar síðustu tvær vikurnar og eru gerðar með þeim fyrirvara um endurskoðun eftir þróun gengis á næstu misserum, hvort sem að verður til styrkingar eða veikingar.
Þessi aðgerð er því miður óumflýjanleg en við sjáum okkur ekki fært annað en að bregðast við þeim aðstæðum sem komnar eru upp á heimsvísu.
Kæru viðskiptavinir Samhentra
Vegna vaxandi útbreiðslu COVID-19 á heimsvísu skoðum við daglega ytri aðstæður og fylgjumst grannt með fréttum sem berast. Við metum stöðuna með samskiptum við okkar birgja, skoðum birgðastöðu, birgðakeðju og framleiðslugetu okkar og getu til að eiga og senda viðskiptavinum okkar vörur. Sjá meira að ofan
Tilkynning vegna COVID - 19 veirunnar
Hér má lesa viðbragðsáætlun Samhentra vegna COVID - 19 veirunnar. Við vonum að þetta ástand vari stutt og við getum aftur unnið á eðlilegan máta með viðskiptavinum okkar. Þangað til biðjum við gesti og viðskiptavini að hjálpa okkur með því að fylgja þessum einföldu reglum.
Verslunin okkar verður áfram opin en aðgengi að sölumönnum verður heft. sjá tilkynning að ofan
Samhentir kaupa rekstur Kassagerðar Reykjavíkur
Samhentir Kassagerð hf. hefur komist að samkomulagi við Kassagerðar Reykjavíkur ehf. um kaup á lager og viðskiptasamböndum félagsins. Sameinaður rekstur verður rekinn undir merkjum Samhentra.
SamVör í WOW
Að sjálfsögðu tók starfsfólk Samhentra og Vörumerkingar þátt í WOW cyklothon þetta árið eins og undanfarin ár.
Opnunartími í Samhentum og Vörumerkingu í sumar
Ágætu viðskiptavinir.
Í sumar frá og með 18. júní til og með 23. ágúst verða Samhentir og Vörumerking opin frá 08:00 til 16:00
Samhentir, Vörumerking og Bergplast í sjónvarpsþættinum Súrefni á Hringbraut
Um daginn fengu Samhentir, Vörumerking og Bergplast heimsókn frá Lindu Blöndal sem stýrir þættinum Súrefni á sjónvarpsstöðinni Hringbraut. Virkilega fræðandi og góður þáttur þar sem málin voru krufin og áherslur Samhentra og Bergplasts sem umhverfisvæn fyrirtæki koma fram. Sjáðu þáttinn hérna http://www.hringbraut.is/sjonvarp/thaettir/surefni-22-mai
Nýr starfsmaður. Góðar fréttir fyrir garðyrkjuna.
Samhentir hafa gengið frá ráðningu á Bryndísi Björk Reynisdóttur sem sölu- og þjónustufulltrúa í garðyrkjudeild félagins. Bryndís er garðyrkjufræðingur og býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á sviði garðyrkjunnar.